Ég verð bara að viðurkenna
að á laugardaginn var ég orðin frekar þreytt á tilverunni enda
lífið búið að leika mig grátt síðustu daga þar á undan.
Á fimmtudaginn var ég á fullu að læra og gera skýrslur og verkbækur
og annað skemmtilegt og tímafrekt og svo fattaði ég mjög seint að
ég átti eftir að leiðrétta spænskuritgerð fyrir næsta dag og því
miður fann ég hana ekki. Það fannst mér mjög leiðinlegt enda með
strangan kennara í því fagi og það er glatað að segjast hafa týnt
ritgerð

En það var bara byrjunin.
Á föstudeginum var ég að drífa mig heim úr skólanum. Og þar sem
löggan er alræmd fyrir að VERA ALLAN SÓLARHRINGINN á
Álftanesveginum að taka fólk þá þurfti hún endilega að taka
sakleysingjann mig. Og ég var ekkert einu sinni að keyra það hratt,
en vá þeir mega fara í rassgat... hehehe

Bæði skiptin sem ég
hef verið tekin þá hefur það verið á Álftanesveginum. Ég þoli ekki
Álftanesveginn, hann er langur og löggan er alltaf þar. Og þar sem
ég er fátækur námsmaður og með áhyggjur af fjárhag mínum þá má ég
ekki við svona peningasóun. En svo á víst að fara að hækka sektir
1.des þannig að það má segja að ég hafi bara rétt sloppið við
kannski hva.. 20 þús kjell?! Úff.. Svo var greinilegt að löggan sem
tók mig átti ekki sjö dagana sæla...Mr. Grumpy.. yes..
En já.. nóg um þetta lögguvesen. Nú er það bara 70 km hraði á
Álftanesveginum og ekki kílómeter hærra!

(Nema þar sem
hámarkshraði er lægri off kors

)
Á laugardeginum fór ég að vinna, allt gott og blessað með það, nema
að þegar ég kom heim þá var ég svo ógeðslega mikið að drífa mig að
ég labbaði á hornið á svefnsófanum mínum með þeim afleiðingum að
litla táin mín hmm.. hún brotnaði ekki en díses hvað þetta var
sárt!

Þið viljið ekki að ég lýsi þessu nánar

En fyrir utan þessi smávægilegu atvik sem eru ekki einu sinni þaaað
slæm, þá er bara allt fínt að frétta

Nóg að gera reyndar, meira
en nóg. Jólaprófin nálgast og ekki einu sinni mánuður í þau! Það
kemur alltaf svona aukahjartsláttur þegar ég hugsa til þeirra

En
þegar þau verða búin þá verður allt gaman

Jól.. góður matur,
snjór, seríur, jólatré, jólaskraut, jólatónlist, allt svo
kósíí..mmm..Ég þoli ekki að prófin séu áður en jólin koma, mig
langar bara að fá þau strax. Það er eins og maður þurfi að vinna
fyrir því að fá þau. Fara í gegnum slatta af prófum, og eftir þau,
þáá mega jólin koma. Oh..
Ég er svo södd að ég er að deyja. Var að enda við að koma af
American Style með Valla og ég tók eftir því hvað ostborgarinn (og
líklegast flest annað) hefur hækkað mikið, samt ekkert það nýlega
en samt. Þegar ég byrjaði að stunda þennan stað grimmt þá kostaði
eitt ostborgaratilboð 895 kr en núna kostar það 1095 kr. Jahá..
En núna er ég að spá í að fara að lesa bók, eitthvað sem ég geri
aldrei. Og nei, ég les ekki einu sinni námsbækurnar

ussss...
Kvennamaður deyr, eftir Óttar Guðmundsson.
Bara búin með fyrstu blaðsíðuna en hún lofar strax góðu
Eitt að lokum. Brynja elskan (betur þekkt sem Brynja perv, hjá mér
allavega

HAHHAA

) á afmæli á morgun, til hamingju með það
sæta! :*